Enski boltinn

Arsenal á toppinn eftir markalaust jafntefli gegn Middlesbrough | Sjáðu samantektina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arsenal og Middlesbrough gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikurinn fór fram á Emirates-vellinum í London. 

Leikurinn var nokkuð fjörugur og fengu bæði lið fín tækifært til að skora mörk. Petr Cech var stórkostlegur í marki Arsenal í leiknum og bjargaði heimamönnum oft á tíðum. 

Arsenal fer í efsta sæti deildarinnar eftir stigið og er liðið með 20 stig. Middlesbrough er í 17. sæti deildarinnar með sjö stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×