Formúla 1

Arrivabene: Það væri bilun að einblína á 2017

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari er ekki tilbúinn að leggja árar í bát.
Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari er ekki tilbúinn að leggja árar í bát. Vísir/Getty
Ferrari liðið þarf að halda athyglinni á yfirstandandi tímabili en ekki horfa eingöngu á 2017 samkvæmt Maurizio Arrivabene liðsstjóra Ferrari. Bilið í Mercedes er 81 stig.

Mörg stærri liðanna eru farin að horfa töluvert til næsta árs. Miklar breytingar verða gerðar á yfirbyggingu bílanna. Hönnuðir liðanna hafa því í nógu að snúast. Arrivabene segir það bilun að einblína á komandi ár og hætta að þróa bílinn sem nú er í notkun.

„Staðan er sú að það er bil upp í Mercedes en við erum ekki svo langt frá þeim,“ sagði Arrivabene.

„Það er bilun að einblína á næsta ár, við þurfum að halda einbeitingu á þessu tímabili. Við erum enn að vinna í okkar veikleikum. Við munum halda því áfram,“ bætti Arrivabene við.

Ein unnin keppni gæti að mati liðsstjórans komið Ferrari í harða baráttu við Mercedes um heimsmeistarakeppni bílasmiða. Hann hefur trú á því að barátta Nico Rosberg og Lewis Hamilton, ökumanna Mercedes gæti verið til góða fyrir Ferrari.

„Við verðum að treysta á að Rosberg og Hamilton taki nokkur stig hvor af öðrum. Annars verður baráttan erfið. Heimsmeistaramótið er langt og við höfum átt nokkra slæma daga. Ef lukkan snýst okkur í hag er stutt á toppinn. Við verðum að trúa því að það sé að gerast,“ hélt Arrivabene.

„Það væri í fínu lagi mín vegna að verða meistarar með því að vinna eina keppni. Það yrði eins og Keke Rosberg [faðir Nico] gerði [árið 1982],“ sagði Arrivabene að lokum.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Biðin í Bakú

Nico Rosberg á Mercedes vann fyrsta Formúlu 1 kappaksturinn sögunnar sem fram fór í Bakú. Hann hefur nú 24 stiga forskot á Lewis Hamilton á toppi heimsmeistarakeppni ökumanna.

Nico Rosberg vann í Bakú

Nico Rosberg á Mercedes var aldrei ógnað hann ræsti fremstur og hélt forystunni til loka. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari þriðji.

Rosberg: Ég og bíllinn vorum eitt í dag

Nico Rosberg vann fyrsta Bakú-kappakstur sögunnar í dag. Hann sigldi auðan sjó frá upphafi eftir að hafa ræst af ráspól. Hann átti einnig hraðasta hring keppninnar. Hann náði þrennunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×