Handbolti

Aron vildi ekki ræða framtíðina | Stundum best að bíta í tunguna á sér

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron gefur skipanir af hliðarlínunni í kvöld.
Aron gefur skipanir af hliðarlínunni í kvöld. vísir/valli
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari var bugaður eftir tapið gegn Króatíu í kvöld. Vonbrigðin skinu úr andliti hans og skal engan undra.

Þetta er annað mótið í röð þar sem að íslenska liðið veldur miklum vonbrigðum undir hans stjórn og Ólympíuleikar eru úr sögunni. Ætlar hann að reyna að sitja áfram eða hætta sem landsliðsþjálfari?

„Nú ætla ég að komast aðeins út úr húsinu. Stundum er best að bíta aðeins í tunguna á sér. Það koma svör með það fljótlega,“ segir svekktur landsliðsþjálfari.

Sjá einnig: Alexander: Einn leiðinlegasti leikur sem ég hef spilað fyrir landsliðið

Leikurinn í kvöld var auðvitað skelfilegur. Það sáu allir. Íslenska liðið var gjaldþrota.

„Þetta er bara ótrúlegt. Ég sá þetta bara alls ekki koma. Síðasta mót var svolítið sveiflukennt hjá okkur. Sú vinna sem við setjum í gang eftir það var að virka vel og það hafa verið framfarir hjá okkur. Í undirbúningnum leit þetta vel út og það var stígandi hjá okkur. Fyrsti leikurinn var góður en svo hendum við þessu frá okkur á móti Hvíta-Rússlandi,“ segir Aron og má sjá að hann er enn reiður út af þeim leik.

„Hvít-Rússar er flott lið en við eigum að vinna er við skorum 38 mörk. Þá hefðum við verið öruggir með tvö stig í milliriðil og á leið í úrslitaleik gegn Króötum. Þeir voru mjög grimmir í byrjun og grimmari en við. Við vorum óþolinmóðir.“

Blaðamannafundurinn áðan var ekki auðveldur fyrir Aron og Björgvin Pál.vísir/valli
Sjá einnig: Aron: Mér leið illa inn á vellinum

Varnarleikur íslenska liðsins var hreinasta hörmung í síðustu tveim leikjum. Fermingardrengir gegn karlmönnum. Fyrsti leikurinn gegn Noregi gaf góð fyrirheit með vörnina en það reyndust vera falsvonir. Er varnarleikurinn sem liðið spilar ekki nógu góður eða eru leikmennirnir hreinlega ekki nógu góðir?

„Þetta er eitthvað sem maður verður að skoða vel. Það er nokkuð ljóst að við verðum að gera breytingar á vörninni. Það er nokkuð ljóst að við erum ekki að þola að spila þessa vörn. Vörnin var ekki í takti við það sem við höfðum verið að gera og vörnin dettur niður í gæðum strax eftir fyrsta leik. Ég sá þetta ekki fyrir og þetta er mjög sárt.“

Aron og meðþjálfarar hans fundu ekki lausnir á þessu móti. Þeir komu ekki með réttu svörin.

„Við erum ekki að ná að leysa þetta. Það var alveg sama hvað við gerðum. Það eru mikil vonbrigði,“ segir Aron en á Ísland menn í dag sem eru nógu góðir til þess að leysa miðjustöðurnar í vörninni?

„Við fórum í Gulldeildina með tvo nýja þrista í Tandra Má og Guðmundi Hólmar. Þeir litu nokkuð vel út og mér finnst þeir líta út fyrir að geta komið þarna inn. Svo erum við alltaf að leita að línumanni sem getur spilað í vörn og sókn og þar eigum við Arnar Frey Arnarsson til að mynda. Hann er framtíðarmaður. Svo styttist í breytingar hjá landsliðinu og þá verðum við að hugsa það út frá varnarhlutverkinu. Að menn geti spilað bæði í vörn og sókn. Það er erfitt að vera alltaf að skipta tveimur út í vörn og sókn. Flækir málin oft og við reyndum að breyta því hérna. Það gekk ekki.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×