Handbolti

Aron valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron Pálmarsson í úrslitaleiknum í kvöld.
Aron Pálmarsson í úrslitaleiknum í kvöld. Vísir/AFP
Aron Pálmarsson var valinn besti leikmaður Final 4, úrslitahelgarinnar í Meistaradeild Evrópu í handbolta, sem lauk með úrslitaleik Veszprém og Kielce í Köln í kvöld.

Aron, sem leikur með Veszprém, spilaði vel bæði í undanúrslitunum og sjálfum úrslitaleiknum, en Veszprém mistókst þó að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í kvöld.

Þeir töpuðu þá fyrir Kielce í ótrúlegum handboltaleik, en úrslitin réðust í vítakastkeppni. Á tímapunkti hafði Veszprém níu marka forskot.

Aron skoraði sex mörk í dag úr tíu skotum, en í gær skoraði Aron fjögur mörk þegar Veszprém tryggði sér sæti í úrslitaleiknum eftir framlengingu við Kiel.

Mikkel Hansen var markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar þetta tímabilið, en hann skoraði 141 mörk fyrir PSG þetta tímabilið.

PSG vann leikinn um þriðja sætið gegn Kiel fyrr í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×