Fótbolti

Aron spilaði í stundarfjórðung í jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron í leik með Werder á síðasta tímabili.
Aron í leik með Werder á síðasta tímabili. vísir/getty
Aron Jóhannsson spilaði í stundarfjórðung fyrir Werder Bremen sem gerði 1-1 jafntefli við FC Köln á heimavelli í dag.

Aron hefur verið að koma sér hægt og rólega inn í liði Werder undanfarnar vikur, en hann var mikið frá á árinu vegna meiðsla. Bremen er í 14. sætinu með 15 stig.

Leipzig skaust á toppinn með 2-0 sigri á Herthu Berlín, en ævintýralegt gengi nýliðanna heldur áfram. Þeir hafa nú þriggja stiga forskot á Bayern, en Bayern á þó leik til góða.

Önnur úrslit voru þau að Mainz vann 3-1 sigur á Hamburger SV, Alfreð Finnbogason var fjarri góðu gamni vegna meiðsla þegar Augsburg vann 1-0 sigur á Mönchengladbach og Schalke og Freiburg skyldu jöfn 1-1.

Í síðasta leik dagsins vann svo Wolfsburg lið Eintract Frankfurt, 1-0, á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×