Fótbolti

Aron skoraði sitt fyrsta mark fyrir Werder Bremen

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fyrsta markið var úr vítaspyrnu.
Fyrsta markið var úr vítaspyrnu.
Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en Aron Jóhannsson opnaði markareikning sinn hjá Werder Bremen þegar hann skoraði mark úr vítaspyrnu gegn Borussia Moenchengladbach.

Aron skoraði markið þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum og kom heimamönnum yfir. Lars Stindl jafnaði metin fyrir Borussia Moenchengladbach nokkrum mínútum síðar en það var Jannik Vestergaard sem kom Bremen aftur yfir.

Borussia Dortmund vann þægilegan sigur á Hertha Berlin 3 – 1. Mats Hummels, Pierre-Emerick Aubamey og Pierre-Emerick Aubamey skoruðu sitt markið hver í leiknum fyrir Dortmund. Það var Salomon Kalou sem skoraði eina mark Hertha Berlin. Dortmund er í efsta sæti deildarinnar með níu stig. Þetta var fyrsti sigur Bremen á tímablinu og er liðið með fjögur stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×