Handbolti

Aron reif rassvöðvann | Missir af næstu landsleikjum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Pálmarsson, leikmaður Kiel og íslenska landsliðsins, er meiddur og verður frá næstu 3-4 vikurnar. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.

Aron meiddist á vöðva þegar Kiel vann Lübbecke, 24-21, í þýsku úrvalsdeildinni á dögunum. Læknir félagsins, Dr. Brandecker, segir að það hafi blætt inn á rassvöðva og hann rifnað.

Meiðslin hlaut hann þegar um 20 mínútur voru til leiksloka og fór hann samstundis af velli. Ljóst er að Aron mun samkvæmt þessu missa af leikjum Íslands gen Ísrael og Svartfjallalandi í undankeppni EM 2016 um næstu mánaðamót.

Talsvert er um meiðsli í herbúðum Kiel en þeir Filip Jicha og Rasmus Lauge eru frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×