Handbolti

Aron og HSÍ ekki í viðræðum: "Maður bíður ekki fram í júní með að ákveða sig“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Tómas Þór Þórðarson skrifa
Aron Kristjánsson er ekki í viðræðum um lengri samning við Guðmund B. og HSÍ.
Aron Kristjánsson er ekki í viðræðum um lengri samning við Guðmund B. og HSÍ. vísir/eva björk/vilhelm
„Ég heyrði af þessu rétt áðan,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, um þær fregnir að Aron Kristjánsson myndi hætta þjálfun danska liðsins KIF Kolding Köbenhavn í sumar.

Aron er einnig landsliðsþjálfari Íslands en samningur hans við HSÍ rennur út í sumar. „Nú einbeitum við okkur að því að undirbúa liðið fyrir mikilvæga leiki gegn Serbíu í undankeppni EM 2016. Það er því ekkert nýtt í samningaviðræðunum.“

Hann segist ekki útiloka neitt hvað framhaldið varðar en að staðan yrði metin út frá gengi liðsins og hvort það komist á lokakeppni EM í Póllandi.

„Við eigum enn eftir að klára okkar umræðu - fara yfir árangurinn og hvert við stefnum. En það er ekki nokkur spurning að ég tel að Aron sé mjög góður kostur fyrir landsliðið.“

Aron rætt við Hauka

Gamla starfið hans Arons hjá Haukum losnar í sumar þegar Patrekur Jóhannesson lætur af störfum, en Aron viðurkennir í samtali við Vísi að hafa rætt lauslega við sína gömlu yfirmenn á Ásvöllum.

„Ég hef rætt lauslega við þá þar sem þessi staða hjá Kolding hefur verið í deiglunni í svolítinn tíma. Maður hefur auðvitað spáð hvað tekur við,“ segir Aron við Vísi.

Ljóst er að taki hann við Haukum verður hann ekki áfram landsliðsþjálfari. Það féll í grýttan jarðveg hjá félögunum í deildinni þegar Aron stýrði Haukaliðinu fyrsta árið sitt með landsliðið.

„Það er ljóst að maður bíður ekki fram í miðjan júní með að ákveða sig,“ segir Aron sem endurspeglar orð formannsins um samningaviðræðurnar.

„Það hafa engar formlegar viðræður átt sér stað. Maður er bara að einbeita sér að leikjunum í undankeppninni,“ segir Aron Kristjánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×