Handbolti

Aron og félagar réðu ekki við Barcelona

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. vísir/epa
Barcelona vann góðan sigur á Veszprém, 26-23, í stórleik helgarinnar í Meistaradeild Evrópu.

Aron Pálmarsson átti fínan leik fyrir gestina frá Ungverjalandi og skoraði hann 3 mörk. Staðan í hálfleik var 16-11 fyrir heimamenn í Barcelona. Sá munur hélst nánast á liðunum út leikinn og vann Barca að lokum fínan sigur 26-23.

Barcelona er í efsta sæti riðlinum með 10 stig og hefur liðið unnið alla sína leiki. Aron og félagar eru með sex stig.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×