Fótbolti

Aron og félagar fengu skell

Aron Jóhannsson.
Aron Jóhannsson. vísir/getty
AZ Alkmaar, lið Arons Jóhannssonar, sótti ekki gull í greipar Twente í hollenska bikarnum í kvöld.

Heimamenn í Twente mjög beittir og unnu leikinn 3-0. Staðan í hálfleik var 2-0 og þá kom Aron af bekknum hjá AZ.

Innkoma hans breytti engu því lokatölur urðu 3-0.

Twente þar með komið áfram í bikarnum en AZ getur einbeitt sér að deildinni þar sem liðið er í fimmta sæti, einu sæti fyrir ofan Twente.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×