Fótbolti

Aron og félagar áfram í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Jóhannsson.
Aron Jóhannsson. Vísir/Getty
Aron Jóhannsson spilaði allan leikinn þegar AZ Alkmaar tryggði sér sæti í átta liða úrslitum hollenska bikarsins eftir 2-1 heimasigur á b-deildarliði NEC Nijmegen.

Aron náði ekki að skora í leiknum en bæði mörkin skoraði hinn 19 ára sænski framherji Muamer Tanković sem kom til liðsins í sumar eftir að hafa ekki fengið nýjan samning hjá enska liðinu Fulham.

Aron Jóhannsson, sem var vítaskytta liðsins á síðustu leiktíð, fékk ekki að taka vítið sem liðið fékk í seinni hálfleiknum.

Muamer Tanković skoraði fyrsta mark leiksins á 33. mínútu og bætti síðan öðru marki við úr víti á 62. mínútu. Anthony Limbombe minnkaði muninn fjórum mínútum síðar en nær komst NEC-liðið ekki.

Aron Jóhannsson er kominn aftur af stað eftir að hafa misst af byrjun tímabilsins vegna meiðsla. Hann hefur skorað 2 mörk í fyrstu 6 leikjum sínum í hollensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×