Handbolti

Aron og Atli fóru mikinn í stórsigri

Aron Rafn lokaði markinu.
Aron Rafn lokaði markinu. vísir/vilhelm
Íslendingaliðið Guif var í banastuði í kvöld í sænska handboltanum.

Þá unnu lærisveinar Kristjáns Andréssonar stórsigur, 33-18, á IFK Skövde. Magnaður leikur hjá þeim.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði fimm mörk fyrir Guif í kvöld. Aron Rafn Eðvarðsson var frábær í marki liðsins. Varði 13 skot og var með 57 prósenta markvörslu í leiknum.

Guif styrkti stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×