Handbolti

Aron með fjögur mörk í sigri Veszprém

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði fjögur mörk gegn Tatabánya.
Aron skoraði fjögur mörk gegn Tatabánya. vísir/epa
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Veszprém sem vann Tatabánya, 25-32, í úrslitariðli um ungverska meistaratitilinn í handbolta.

Veszprém hefur unnið alla fjóra leiki sína í úrslitariðlinum en Aron og félagar eru í 2. sæti hans, tveimur stigum á eftir Pick Szeged sem hefur unnið alla fimm leiki sína.

Staðan var jöfn í hálfleik, 14-14, en í þeim seinni stigu Veszprém-menn á bensíngjöfina og tryggðu sér sjö marka sigur, 25-32.

Veszprém er nýbúið að vinna bikarmeistaratitilinn í Ungverjalandi og þá er liðið komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sigur á Vardar í fyrri leiknum í 8-liða úrslitum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×