Handbolti

Aron með fjögur í sigri Veszprém - Barcelona í vandræðum með Kristianstad

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron gerði fjögur mörk í dag.
Aron gerði fjögur mörk í dag.
Aron Pálmarsson var í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu í dag þegar lið hans Veszprém vann fínan sigur á Flensburg, 28-24.

Aron gerði fjögur mörk í leiknum en Momir Ilic var atkvæðamestur í ungverska liðinu með níu mörk.

Börsungar voru í töluverðum vandræðum með lið Kristianstad en liðið rétt marði sigur 34-32 á Spáni. Guðjón Valur Sigurðsson gerði tvö mörk fyrir Barcelona. Þá vann Kielce frábæran sigur á Montpellier 30-23.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×