Handbolti

Aron mætir Kiel í undanúrslitaleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Í dag var dregið í undanúrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta en þrjú Íslendingalið voru í pottinum.

Það eru lið Alfreðs Gíslasonar, Kiel, ungverska liðið Veszprém sem Aron Pálmarsson leikur með og svo PSG sem er lið Róberts Gunnarssonar.

Kiel og Veszprém drógust auðvitað saman í undanúrslitunum. Aron lék auðvitað áður með Kiel þannig að þetta verður sérstakur leikur fyrir hann. Liðin mættust einnig í riðlakeppninni þannig að Aron er þegar kominn með reynslu af því að mæta Kiel.

Hinn undanúrslitaleikurinn er á milli pólska liðsins Kielce og og PSG.

Úrslitahelgin fer fram í Köln helgina 28. og 29. maí og hún verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×