Fótbolti

Aron lék í jafntefli AZ og Swolle

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron og félagar eru í 5. sæti hollensku deildarinnar.
Aron og félagar eru í 5. sæti hollensku deildarinnar. vísir/getty
Aron Jóhannsson lék fyrstu 77 mínútur leiksins þegar AZ Alkmaar og PEC Swolle skildu jöfn í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

AZ komst yfir með marki Nemanja Gudelj á 5. mínútu en þetta var 8. mark Serbans í deildinni í vetur. Jody Lukoki jafnaði metin á 15. mínútu og þar við sat.

Aron og félagar sitja í 5. sæti deildarinnar með 32 stig en Swolle er í sætinu fyrir ofan með 33 stig.

Aron hefur skorað tvö mörk í níu deildarleikjum í vetur en hann missti af byrjun tímabilsins vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×