Handbolti

Aron leikmaður umferðarinnar í Meistaradeildinni | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron í leiknum gegn Montpellier.
Aron í leiknum gegn Montpellier. vísir/getty
Aron Pálmarsson er heldur betur að komast í gamla formið eftir langa fjarveru vegna meiðsla.

Hann fór á kostum með liði sínu, Veszprém, er það lagði franska liðið Montpellier, 26-23, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Aron skoraði sex mörk í leiknum og lagði upp fjölda annarra. Dró vagninn er á þurfti að halda í þessum afar mikilvæga leik.

Frammistaðan gerði það að verkum að hann var valinn besti leikmaður umferðarinnar hjá Meistaradeildinni. Brot af tilþrifum Arons úr leiknum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×