Fótbolti

Aron lagði upp sigurmark Tromsö

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Sigurðarson í leik með Fjölni.
Aron Sigurðarson í leik með Fjölni. Vísir/Daníel
Aron Sigurðarson lagði upp eina mark leiksins í kvöld þegar Tromsö komst aftur á sigurbraut eftir þrjú töð í röð í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Aron skoraði í fyrsta leik Tromsö á leiktíðinni en Fjölnismaðurinn hafði ekki átt þátt í marki síðan að hann meiddist í upphafi móts

Nú gerði Aron hinsvegar útslagið þegar sending hans frá kantinum fór beint á höfuðið á Sofien Moussa sem skoraði strax á sjöundu mínútu.

Aron var tekinn af velli á 64. mínútu leiksins en sigurinn skilar Tromsö upp í tíunda sæti deildarinnar.

Þetta var aðeins annar sigurleikur Tromsö á tímabilinu en hinn kom á móti 10. apríl síðastliðinn.

Tromsö hafði tapað síðustu þremur leikjum sínum með markatölunni 1-12 þar af 6-0 á móti Aalesunds FK í leiknum á undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×