Fótbolti

Aron lagði upp mark í mikilvægum sigri Tromsö

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron í leik með Fjölni.
Aron í leik með Fjölni. Vísir/Daníel
Aron Sigurðarson og félagar í Tromsö lyftu sér frá fallbaráttunni með góðum 3-0 sigri á Stabæk á útivelli í dag en Aron lagði upp eitt mark og brenndi af víti í seinni hálfleik.

Eftir að hafa nælt aðeins í eitt stig í síðustu þremur leikjum liðsins þurftu leikmenn Tromsö á sigri að halda í dag gegn Stabæk sem sat í næst neðsta sæti deildarinnar.

Aron lagði upp fyrsta mark leiksins á 7. mínútu leiksins en hann fékk síðan tækifæri til að gera endanlega út um leikinn með vítaspyrnu á 57. mínútu.

Honum brást hinsvegar bogalistin en það kom ekki að sök því leiknum lauk með 3-0 sigri Tromsö. Aron bíður því áfram eftir fyrsta markinu í langan tíma en  hann hefur ekki skorað mark í rúmlega tvo mánuði eftir að hafa skorað í fyrsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×