Handbolti

Aron Kristjáns: Helmingslíkur á að Aron spili gegn Dönum

Arnar Björnsson í Doha skrifar
Aron Kristjánsson er í þeirri skemmtilegu stöðu að þjálfa besta félagslið í Danmörku, Kolding, og stýrir íslenska landsliðinu á morgun gegn Dönum.  Hann segir að danska liðið sé ásamt Frökkum besta liðið í dag.

Hvað þarftu að gera til að vinna Danina? „Við þurfum að ljúka okkar sóknum vel því Danir eru gríðarlega sterkir í hraðaupphlaupum og hraðri miðju og refsa andstæðingum sínum grimmt. Eins og okkar leikur er uppbyggður þegar við erum að skipta milli varnar og sóknar er mikilvægt að við náum að ljúka sóknum okkar vel til að geta stillt upp í rétta vörn“.

Þarftu að hugsa þetta upp á nýtt hvernig þú skiptir milli varnar og sóknar? „Þetta er bara vandamál sem við eigum við að etja þar sem margir í okkar liði hafa styrkleika á sitt hvorum enda vallarins. Við þurfum að fara yfir það hvernig við getum skipulagt þetta sem best“.

Er eitthvað sem þú óttast í leik Dana? „Danir eru bara með mjög sterkt lið og eitt þeirra sem talið er líklegt til að vinna titilinn, eitt besta lið í heimi ásamt Frökkum.

Hvaða lýkur eru á því að nafni þinn Pálmarsson spili? „Það eru helmingslíkur eins og staðan er í dag.  Hann er að koma til og miklar framfarir síðasta hálfan annan sólarhring. Svo sjáum við hvort hann verði einkennalaus á eftir og geti hreyft sig. Ef það gengur eftir er möguleiki á því að hann geti spilað. Við verðum að taka eitt skref í einu og það þýðir ekkert að  gera þetta öðruvísi.   

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×