Fótbolti

Aron kom inná í sigri Werder Bremen

Dagur Lárusson skrifar
Aron Jóhannson
Aron Jóhannson vísir/getty
Aron Jóhannsson spilaði síðustu mínúturnar fyrir Werder Bremen í sigri liðsins gegn Hamburger í þýsku deildinni í dag.

Það var fátt um fína drætti í þessum leik en eina mark leiksins leit dagsins ljós á 86. mínútu þegar Rick Van Drongelen varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Eftir leikinn er Werder Bremen í 14. sæti deildarinnar með 26 stig.

Alls fóru fimm leikir fram í dag en hér fyrir neðan má sjá úrslitin úr þeim.

Bayern Munchen 0-0 Hertha Berlin

Hannover 0-1 Borussia Moechengladbach

Hoffenheim 1-1 Freiburg

Stuttgart 1-1 Frankfurt

Werder Bremen 1-0 Hamburger


Tengdar fréttir

Aron byrjaði í mikilvægum sigri

Aron Jóhannson lék fyrstu 65 mínútur leiksins þegar að Werder Bremen hafði betur gegn Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni í dag, 3-1. Með sigrinum komst Bremen þrem stigum fyrir ofan fallsvæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×