Fótbolti

Aron kom ekkert við sögu í jafntefli á BayArena

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron hefur skorað eitt mark í átta deildarleikjum á tímabilinu.
Aron hefur skorað eitt mark í átta deildarleikjum á tímabilinu. vísir/getty
Aron Jóhannsson sat allan tímann á varamannabekknum þegar Werder Bremen gerði 1-1 jafntefli við Bayer Leverkusen á BayArena í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Aron hefur fengið fá tækifæri að undanförnu en hann var síðast í byrjunarliði Bremen 11. september 2016.

Þetta var fyrsti leikur Leverkusen undir stjórn Tyrkjans Tayfun Korkut sem tók við stjórastarfinu af Roger Schmidt á dögunum.

Kevin Volland kom Leverkusen yfir strax á 7. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir að skot Julians Brandt hafnaði í slánni.

Það var svo reynsluboltinn Claudio Pizarro sem jafnaði metin á 79. mínútu eftir sendingu Roberts Bauer. Lokatölur 1-1.

Leverkusen er í 10. sæti deildarinnar en Bremen í því fjórtánda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×