Fótbolti

Aron Jóhannsson tjáir sig um ákvörðun sína

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Skjáskot
Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson segir að það yrði draumur að komast á heimsmeistaramótið með landsliði Bandaríkjanna. Það hafi verið draumur hans síðastliðin fimmtán ár.

Þetta segir Aron í viðtali við hollenska fjölmiðilinn RTV. Aron er spurður út í leikstíl sinn og viðureign AZ Alkmaar og Ajax í hollensku úrvalsdeildinni um helgina. Þá snýr spyrillinn sér að þjóðerni Arons og spyr hvort honum finnist hann vera meiri Íslendingur eða Bandaríkjamaður.

„Ég er sitt lítið af hvoru," segir Aron í viðtalinu sem er tekið á ensku. Aðspurður hvers vegna hann hafi kosið að spila fyrir Bandaríkin frekar en Ísland segir Aron:

„Ég vil helst ekki tala mikið um þetta. Ég kaus hins vegar að spila fyrir Bandaríkin og vonandi fæ ég mínar fyrstu mínútur með landsliðinu á miðvikudaginn," segir Aron. Sóknarmaðurinn hefur verið valinn í landslið Bandaríkjanna fyrir æfingaleik gegn Bosníu á miðvikudag. Enn á þó eftir að fást staðfesting frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu að Aron megi spila með Bandaríkjunum. Það er þó aðeins tímaspursmál.

Hollenski blaðamaðurinn segir að væri hann hálfur Íslendingur og hálfur Kani teldi hann líkurnar meiri á því að komast í lokakeppni heimsmeistaramótsins með Bandaríkjunum.

„Það gildir það sama um mig," segir Aron. „Mig hefur dreymt um að spila á HM síðan ég horfði fyrst á árið 1998. Möguleikarnir eru meiri með Bandaríkjunum og það yrði draumur að spila með Bandaríkjunum á HM."

Viðtalið við Aron, sem er á sjónvarpsformi, má sjá með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Klinsmann vill velja Aron í landsliðið sem fyrst

"Við erum mjög spenntir fyrir því að Aron hafi ákveðið að landsliðsframi sinn verði með Bandaríkjunum,“ segir Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.

Ferill Arons í máli og myndum

Aron Jóhannsson ætlar að spila fyrir hönd Bandaríkjanna í framtíðinni. Framherjinn tilkynnti það í yfir­lýsingu sem hann sendi frá sér á mánu­daginn.

Búið að sækja um breytinguna fyrir Aron

Bandaríska knattspyrnusambandið hefur lagt inn beiðni til Alþjóðaknattspyrnusambandsins þess efnis að Aron Jóhannsson fái að spila með landsliði þjóðarinnar.

Þúsund manns styðja Aron

Ákvörðun Arons Jóhannssonar að gefa kost á sér í bandaríska landsliðið í stað þess íslenska hefur vakið mikla athygli hér á landi sem vestanhafs.

Mun ekki tjá sig um ástæðuna

Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson tilkynnti í dag á Fésbókarsíðu sinni að hann hefði ákveðið að spila fyrir hönd Bandaríkjanna í framtíðinni.

Hann fær jafn mikla samkeppni hjá bandaríska liðinu

Aron Jóhannsson tók þá ákvörðun í gær að gefa kost á sér í bandaríska landsliðið í knattspyrnu og í leiðinni útilokar hann að leika nokkurn tímann með íslenska landsliðinu. Landsliðsþjálfarinn ósáttur við ákvörðuna.

Aron valinn í bandaríska landsliðið

Aron Jóhannsson hefur verið valinn í landsliðshóp bandaríska landsliðsins í knattspyrnu en liðið leikur vináttuleik við Bosníu og Hersegóvínu þann 14. ágúst en leikurinn fer fram í Sarajevo.

Skiptar skoðanir um ákvörðun Arons

Óhætt er að segja að ákvörðun Arons Jóhannssonar að kjósa að spila fyrir bandaríska landsliðið í knattspyrnu hafi vakið töluverð viðbrögð á samskiptamiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×