Fótbolti

Aron Jó: „Skemmtilegra að spila fótbolta um helgar en að horfa á hann“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron Jóhannsson, framherji Werder Bremen og bandaríska landsliðsins, segir að það sé skemmtilegra að spila fótbolta heldur en að horfa á hann um helgar. Hann vonast til þess að fá tækifæri með landsliðinu hvað og hverju.

„Það er svolítið skemmtilegra að fá að spila um helgar í stað þess að vera bara heima að horfa á,” sagði Aron í samtali við Akraborgina, en Aron hefur glímt við mikil og erfið meiðsli. Síðan tók við mikil bekkjarseta.

„Þegar ég var meiddur þá hélt ég að það væri versta sem maður gæti lent í. Það er miklu verra að vera heill og fá ekkert að spila. Það var eiginlega miklu erfiðara að díla við það en við meiðslin.”

„Ég var rosalega gleyminn. Ég var mjög fljótur að gleyma og var mjög pirraður allar helgar að vera ekki í hóp. Svo á mánudegi þá var frí og á þriðjudegi var ég eiginlega búinn að gleyma því hvað hefði skeð. Þá byrjaði ný vika og maður hafði fjórar æfingar til að sanna sig.”

„Síðan gekk það reyndar ekkert í langan tíma, en það þýðir ekkert að vorkenna sjálfum sér og kenna öðrum um. Þjálfarinn hefur ansi mikla stjórn yfir því hvað gerist hjá þér, en ég hélt áfram og áfram og áfram. Ég var svo að vinna þessa baráttu ekki hann.”

Bremen skipti um þjálfara í október og það hjálpaði Aroni að fá fleiri tækifæri, en Florian Kohfeldt, núverandi þjálfari Bremen, var einn þjálfara í þjálfarateyminu þegar Aron gekk í raðir AZ Alkmaar.

„Já, algjörlega. Hann var aðstoðarþjálfari þegar ég kem hingað. Síðan voru þeir reknir þegar ég var búinn að vera hérna í ár og hann tók við U23-ára liðinu. Ég hef þekkt hann frá því þegar ég kom. Hann þekkti mig líka og frá fyrsta degi var þetta mjög jákvætt.”

„Ég var ekki búinn að meiðast í eitt ár því ég var ekki mikið búinn að spila. Um leið og hann kemur spiluðum við æfingarleik gegn fjórðu deildarliði og ég meiðist. Þá er ég frá í einn og hálfan mánuð, síðan fékk ég aðeins að spila undir lok árs í fyrra. Svo á undirbúningstímabilinu, loksins fékk ég svo sénsinn og nýtti hann þokkalega vel.”

Vegna meiðslanna datt Aron eðlilega út úr landsliðshóp Bandaríkjanna, en hann vonast til þess að með fleiri mínútur frá Bremen, komi fleiri tækifæri hjá Bandaríkjunum. Þó sé enginn þjálfari nú hjá landsliðinu svo það sé erfitt að segja til um það.

„Ég er aðeins búinn að heyra í Dave eftir ég að byrjaði að spila (innsk. blm. bráðabirgðaþjálfari Bandaríkjana). Ég fékk þau skilaboð að ef ég held áfram að spila og spila svona vel er ég vel inni í myndinni þar.”

Hlusta má innslagið má heyra í spilaranum efst í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×