Fótbolti

Aron fær nýjan liðsfélaga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gnabry í úrslitaleiknum í Ríó.
Gnabry í úrslitaleiknum í Ríó. vísir/getty
Werder Bremen, lið Arons Jóhannssonar, er búið að styrkja sig og keypti afar efnilegan sóknarmann frá Arsenal.

Það er Þjóðverjinn Serge Gbnabry en hann stóð sig frábærlega á Ólympíuleikunum með þýska landsliðinu sem vann til silfurverðlauna á leikunum.

Samningur Gnabry við Arsenal átti að renna út næsta sumar og Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafði lýst yfir áhuga á að framlengja þeim samningi.

Gnabry hefur líklega ekki séð fram á að spila mikið hjá Wenger og er því farinn. Hann er sagður hafa kostað um 650 milljónir króna.

Gnabry er aðeins 21 árs gamall og kom til Arsenal frá Stuttgart fyrir fimm árum síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×