Íslenski boltinn

Aron Elís missir af næstu leikjum Víkings

Aron Elís í leik gegn ÍBV.
Aron Elís í leik gegn ÍBV. vísir/andri marinó
Evrópubarátta Víkings mun fara fram án lykilmanns liðsins í næstu leikjum.

Hinn frábæri leikmaður liðsins, Aron Elís Þrándarson, meiddist í leiknum gegn Val á dögunum og hann mun missa af næstu tveim leikjum liðsins.

Þetta staðfesti Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, við íþróttadeild í dag.

Víkingur spilar gegn Breiðablik í Kópavogi á sunnudag og viku síðar taka Víkingar á móti KR. Aron Elís ætti að ná lokaleik Víkinga í sumar gegn Keflavík.

Víkingur er með fimm stiga forskot á Val í baráttunni um fjórða sætið sem gefur þátttökurétt í Evrópukeppni næsta sumar.


Tengdar fréttir

Ólafur: Hefði viljað sjá tvo Valsara fara út af

Ólafur Þórðarson þjálfari Víkings var allt annað en sáttur við þá meðferð sem Aron Elís Þrándarson fékk hjá Valsmönnum í 1-1 jafntefli liðanna í kvöld í Pepsí deild karla í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×