Enski boltinn

Aron Einar skoraði með bakfallsspyrnu | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson skoraði glæsilegt mark þegar að lið hans, Cardiff, gerði 2-2 jafntefli við Derby í ensku B-deildinni í gær.

Markið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en Aron Einar afgreiddi knöttinn í netið með laglegri bakfallsspyrnu.

Jóhann Berg Guðmundsson var einnig á skotskónum með Charlton í gær og má sjá mark hans síðar í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×