Fótbolti

Aron Einar: FIFA-listinn skiptir okkur ekki það miklu máli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fyrirliðanum er eiginlega sama um FIFA-listann.
Fyrirliðanum er eiginlega sama um FIFA-listann. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði Íslands, var spurður út í stöðu Íslands á styrkleikalista FIFA á blaðamannafundi sem haldinn var í Ósló í morgun.

Ísland er efsta liðið af Norðurlandaþjóðunum á listanum og hann var spurður af sænskum blaðamanni hvort að það veitti honum einhverja sérstaka ánægju.

Sjá einnig:Heimir: Íslendingar halda alltaf að þeir muni vinna Eurovision

Strákarnir mæta á morgun Norðmönnum í næstsíðasta æfingaleik sínum fyrir EM í Frakklandi.„FIFA-listinn skiptir okkur ekki það miklu máli. En það er alltaf gott að vera fyrir ofan hinar þjóðirnar,“ sagði Aron Einar sem ræddi fremur um að það sem mestu máli skiptir væri að Ísland væri komið inn á EM.

„Við settum okkur hátt markmið fyrir þessa undankeppni og við erum afar stoltir af að hafa náð því. En liðið okkar enn að bæta sig sem við teljum mikilvægast. Við erum enn að læra af hverjum öðrum.“

„Þar fyrir utan eru nokkur ný nöfn í íslenska landsliðinu og nú fá þeir dýrmæta reynslu.“

Aron Einar var einnig spurður að því hver væri mikilvægasti þátturinn í velgengni íslenska liðsins.

„Það er samheldnin. Við höfum margir verið lengi saman í landsliðinu og yngri landsliðunum þar á undan. Margir okkar vorum saman á EM U-21 í Danmörku. Við höfum unnið að þessu í langan tíma.“

„Inni á vellinum eru svo tilbúnir að leggja allt í sölurnar fyrir hvern annan. Við erum allir mjög góðir vinir þess fyrir utan.“


Tengdar fréttir

Lagerbäck: Allt mjög jákvætt

Fimm leikmenn fengu hvíld frá æfingunni á Bislett í Ósló en staðan á íslenska landsliðshópnum er góð.

Vil spila allar mínútur á EM

Eiður Smári Guðjohnsen segist koma inn í íslenska landsliðið í góðu formi eftir góða mánuði með Molde í Noregi. Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari er ánægður með stöðu íslenska liðsins sem nú býr sig undir vináttulandsleik geg

Norðmenn klárir með tapsinfóníu

Það er aukin pressa á norska landsliðinu fyrir leikinn gegn Íslandi því tapi liðið leiknum þá verður spilað ömurlegt lag sem er kallað Tapsinfónían.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×