Fótbolti

Aron Einar: Erum að læra að stjórna leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson.
Aron Einar Gunnarsson. Vísir/Valli
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, er skiljanlega mjög sáttur með gengi liðsins í undankeppni EM enda strákarnir okkar á toppi riðilsins með fimmtán stig af átján mögulegum.

Aron Einar hefur spilað mjög vel aftarlega á miðjunni og er janframt búinn að skora í tveimur leikjanna. Fimm sigrar í sex leikjum segja vissulega sína sögu.

„Þjálfararnir eiga hrós skilið fyrir alla skipulagninguna á liðinu og við erum búnir að vera gríðarlega skipulagðir í öllum þessum leikjum," segir Aron Einar.

„Við vorum það reyndar líka í síðustu undankeppni þrátt fyrir að hafa fengið mörg mörk á okkur í þeirri keppni. Þetta hefur smollið núna í þessari undankeppni sem er jákvætt. Við erum greinilega farnir að hlusta aðeins meira á þjálfarana," sagði Aron Einar í léttum tón en bætti síðan strax við: „Nei, nei ég segi núa bara svona," sagði Aron Einar.

„Við erum að læra að stjórna leikjum sem er jákvætt því að við þurfum að gera það. Það kemur tími á fimmtudaginn þar sem við verðum undir mikilli pressu og þá þurfum við að takast rétt á við það. Við gerðum það vel á móti þeim heima og það er vonandi að við náum því aftur í leiknum á fimmtudaginn," segir Aron Einar.

Íslenska liðið lenti undir í síðasta leik á móti Tékkum en strákarnir voru fljótir að snúa leiknum sér í hag.

„Mér fannst við vera með tök á leiknum og vorum ívið betri. Það var eins og við höfðum sett í annan gír þegar þeir skoruðu. Við ætlum okkur sigur í öllum leikjum og ætluðum ekki að fara að svekkja okkur á neinu. Það verður sama upp á teningnum á fimmtudaginn ef að það gerist," segir Aron Einar.

„Við munum ekki fara neitt að fela okkur því við erum með leikmenn sem geta stigið upp og tekið ábyrgð. Við erum allir orðnir það reynslumiklir að við erum allir farnir að taka af skarið," segir Aron Einar.


Tengdar fréttir

Birkir Bjarna bætir við sig fimmta tungumálinu

Birkir Bjarnason segir að honum líki lífið vel í Sviss eftir flutningana frá Ítalíu í sumar. Birkir leikur með Basel sem hefur farið vel af stað í deildinni þótt liðinu hafi skrikað fótur í forkeppni Meistaradeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×