Fótbolti

Aron Einar: Ég verð 100 prósent klár í leikinn á morgun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron Einar í baráttunni í leiknum gegn Ungverjum
Aron Einar í baráttunni í leiknum gegn Ungverjum vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði ætlar að spila gegn Austurríki í lokaleik F-riðils á morgun. Hann fór af velli um miðjan síðari hálfleik gegn Ungverjum og hefur gleymt við meiðsli. Hörkutólið lætur engan bilbug á sér finna.

„Ég er búinn að vera að vinna í líkamanum. Það kom einn sjúkraþjálfari sérstaklega með mér á blaðamannafundinn til að undirbúa mig fyrir æfinguna,“ sagði Aron Einar á blaðamannafundi fyrir æfingu liðsins á Stade de France.

„Ég er allur að koma til. Ég verð 100 prósent tilbúinn í fundinn á morgun.“

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×