Tónlist

Aron Can dúnmjúkur og þakklátur í nýju lagi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lagið flutti hann í beinni í Kronik.
Lagið flutti hann í beinni í Kronik. Skjáskot
Rapparinn Aron Can er þakklátur í nýju lagi sem hann frumflutti, í beinni útsendingu, í útvarpsþættinum Kronik á dögunum.

Lagið verður á nýrri plötu Arons sem er væntanleg í mars á þessu ári. 

Þeir Kronikbræður Benni B-Ruff og Robbi Kronik halda mikið upp á drenginn og útnefndu þeir til að mynda lag hans, Enginn mórall, sem besta lag síðasta árs.

Sjá einnig: Aron Can flutti ofursmellinn í beinni

„Ekki margir sautján ára sem lifa fokking drauminum" segir Aron í laginu en þrátt fyrir það fylgist „mamma alltaf með.“ Ungstirni geta varla farið fram á mikið meira.

Nýja lagið má heyra, og sjá, hér að neðan.

Kronik er á dagskrá alla laugardaga klukkan 17 á X-inu 977.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×