Handbolti

Aron búinn að velja þá átján sem fara til Þýskalands

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. Vísir/Anton
Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur valið þá átján leikmenn sem munu taka þátt í vináttulandsleikjum við Þjóðverjar um næstu helgi.

Aron hefur þar með fækkað um þrjá í landsliðshópnum en þeir Hreiðar Levý Guðmundsson, Bjarki Már Elísson og Guðmundur Árni Ólafsson verða ekki meira með landsliðinu að þessu sinni.

Strákarnir fara í fyrramálið til Þýskalands og leika þar tvo vináttulandsleiki við Þjóðverja. Fyrri leikurinn er á laugardag kl.14 í Kassel og sá síðar í Hannover á sunnudag einnig  kl. 14.

Aron valdi átján manna hóp en sautján af þeim munu síðan fara á Evrópumótið í Póllandi sem hefst í lok næstu viku.

Íslenski hópurinn:

Markmenn:

Aron Rafn Eðvarðsson, Alaborg

Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club

Aðrir leikmenn:

Alexander Petersson, Rhein Neckar Löwen

Arnór Atlason, St. Rafael

Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club

Aron Pálmarsson, MKB Veszprém KC

Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes

Bjarki Már Gunnarsson, Aue

Guðjón Valur Sigurðsson, FC Barcelona

Guðmundur Hólmar Helgason, Valur

Kári Kristján Kristjánsson, IBV

Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad

Róbert Gunnarsson, Paris Handball

Rúnar Kárason, TSV Hannover/Burgdorf

Snorri Steinn Guðjónsson, Nimes

Stefán Rafn Sigurmannsson, Rhein Neckar Löwen

Tandri Már Konráðsson, Ricoh

Vignir Svavarsson, HC Midtjylland ApS




Fleiri fréttir

Sjá meira


×