Handbolti

Aron bestur í Meistaradeildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron í leik með Veszprém.
Aron í leik með Veszprém. vísir/epa
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur útnefnt Aron Pálmarsson sem besta leikmann þriðju umferðar í Meistaradeildinni.

Aron fór á kostum með liði sínu Veszprém gegn Wisla Plock. Aron skoraði átta mörk í leiknum og var hreinlega óstöðvandi.

Það eru handknattleiksáhugamenn sem velja og fólk um alla Evrópu var á því að Aron væri bestur. Það vissum við Íslendingar reyndar fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×