Handbolti

Aron: Tilefni til umhugsunar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Kristjánsson ásamt Gunnari Magnússyni á æfingu landsliðsins í dag. Aron Pálmarsson er á myndinni til hægri.
Aron Kristjánsson ásamt Gunnari Magnússyni á æfingu landsliðsins í dag. Aron Pálmarsson er á myndinni til hægri. Vísir/Valli/Daníel
Aron Kristjánsson stýrði í dag fyrstu æfingu íslenska landsliðsins í undirbúningi þess fyrir HM í Katar sem hefst um miðjan næsta mánuð. Æfingin fór fram án Arons Pálmarssonar sem varð fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur um helgina.

Sá síðarnefndi missir af æfingum liðsins bæði í dag og á morgun en landsliðsþjálfarinn segir mál þetta hafa áhrif á undirbúning liðsins fyrir HM í Katar.

„Þetta eru fáar æfingar sem við fáum allir saman í aðdraganda þessa móts og því skiptir hver æfing miklu máli. Í dag ætluðum við að vinna með atriði þar sem hann er í vissu lykilhlutverki og slæmt að hann geti ekki tekið þátt í því.“

„Þetta hefur svo auðvitað verið áfall fyrir hann sjálfan en ég á von á honum til æfinga hér þann 2. janúar og vonandi að hann verði í lagi þá. Hann er með skurð yfir öðru auganu og bólginn í andlitinu.“

Aron segist hafa búið sig undir það versta miðað við fyrstu tíðindin sem hann fékk af atvikinu. „En svo heyrði ég í honum sjálfum og varð rólegri. Ég hef ekki áhyggjur af öðru en að hann kom inn í þetta verkefni með okkur af fullum krafti. Hann var farinn að hlakka mikið til að taka þátt í mótinu og ég hef fulla trú á því að við náum að vinna úr þessu.“

Aron Pálmarsson var að skemmta sér með vinum á sínum frítíma en landsliðsþjálfarinn segir að mál sem þetta séu ávallt viðkvæm.

„Hann var að spila með sínu félagsliði þann 26. desember og kom svo heim degi síðar. Hann var svo í fríi til 30. desember og fór því út að borða með sínum félögum þegar þetta atvik á sér stað. Það er mjög slæmt og ætti að gefa mönnum tilefni til umhugsunar. Menn verða að fara varlega og passa sig.“

Aron telur ekki að þetta mál hafi neikvæð áhrif á leikmannahópinn. „Það er auðvitað slæmt að hann missi af þessum æfingum og að umfjöllun um liðið nú þegar undirbúningur fyrir stórmót hefst skuli vera á þessum nótum. En það eru þaulreyndir strákar í hópnum og þeir munu standa þétt við bak Arons. Þeir fordæma þessa árás því þetta getur auðvitað gerst fyrir hvern sem er.“


Tengdar fréttir

Aron gaf eina milljón til krabbameinssjúkra barna

Handboltamaðurinn Aron Pálmarsson hefur verið mikið í fréttunum í morgun eftir að það fréttist af því að íslenski landsliðsmanninn hafi orðið fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur um helgina en kappinn bíður líka upp á góðar fréttir af sér í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×