Handbolti

Aron: Það var enginn morgundagur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron á hliðarlínunni í dag.
Aron á hliðarlínunni í dag. Vísir/Eva Björk
Aron Kristjánsson, þjálfari íslenska landsliðsins, segir að það hafi verið einkar góð tilfinning að sjá íslenska landsliðið landa sigri gegn Egyptalandi í kvöld og tryggja sér þannig sæti í 16-liða úrslitum keppninnar.

„Þú getur ímyndað þér hvernig okkur öllum hefur liðið frá því í síðasta leik. Það var enginn morgundagur hjá okkur,“ sagði Aron en Ísland tapaði fyrir Tékklandi á fimmtudag með ellefu marka mun og þurfti nauðsynlega að vinna í kvöld til að komast áfram í 16-liða úrslitin.

„Hver einasti maður undirbjó sig virkilega vel fyrir þennan leik og allir leikmenn tóku virkilega mikla ábyrgð. Reynslumiklir menn komu sterkir inn í undirbúninginn og við lögðum mikið í hann.“

„Þjóðarstoltið er mikið í okkur Íslendingum og það var gaman að sjá hvernig strákarnir komu til baka.“

Hann segist ekki hafa haft áhyggjur þrátt fyrir að Egyptar hafi komist í 4-1 forystu í leiknum í kvöld.

„Mér fannst þvílíkur hugur í okkur. Það voru allir klárir og afar fórnfúsir og mér fannst spennustigið rétt. Við vorum óheppnir með vissa hluti í upphafi en menn voru bara sterkir á því og við náðum að vinna okkur jafnt og þétt inn í leikinn.“

Ísland var með 15-10 forystu eftir fyrri hálfleikinn en Egyptar komu inn í þann síðari af miklum krafti og hleyptu meiri spennu í leikinn. Aron átti von á því.

„Við vorum búnir að undirbúa það og gátum þolað það. Það var svo frábært að geta landað þessu - þrátt fyrir að markvörður þeirra hafi komið þá strerkur inn og við gert nokkra tæknifeila og lent í undirtölu. En við náðum alltaf að standa allt af okkur sem var frábært.“

Egyptar byrjuðu með nokkra leikmenn í kvöld sem höfðu minna spilað í mótinu til þessa en í síðari hálfleik spiluðu þeir lengst af á sínum sterkasta mannskap.

„Þjálfarinn þeirra hefur gert þetta nokkrum sinnum í mótinu. Hann virðist vera að dreifa á álaginu á milli manna en eftir byrjunina þá setur hann ásana sína inn á og þeir spila bróðurpart leiksins.“

„Ég held að hann hafi veðjað á ferska krafta því að þeirra vörn útheimtir mikla orku. Þeir voru komnir í 16-liða úrslitin og ætla sér eitthvað áfram. Þá verða þeir að vera með menn ferska.“

Ísland mætir Danmörku á mánudag og ljóst að verkefni strákanna verður erfitt. „Nú þurfum við aðeins að ná okkur niður. Það var bara þessi leikur og nú þurfum við að jafna okkur og svo hefst undirbúningur fyrir næsta leik. Þetta verður bara spennandi.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×