Handbolti

Aron: Spinnast út frá fjárhagsstöðu félagsins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Kristjánsson reynir að verja bikarmeistaratitilinn í Final 4 í Álaborg um helgina.
Aron Kristjánsson reynir að verja bikarmeistaratitilinn í Final 4 í Álaborg um helgina. vísir/daníel
„Þetta er búið að vera í deiglunni í svolítinn tíma,“ segir Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handbolta, við Vísi um viðskilnað sinn við danska liðið KIF Kolding Köbenhavn.

Eins og Vísir greindi frá í dag lætur Aron af störfum eftir tímabilið, en hversu lengi hefur Aron hugsað þetta?

„Þetta fór af stað milli jóla og ný árs. Ég var samt ekkert undir pressu að ákveða mig strax en nú er búið að taka ákvörðun um þetta.“

Aron tók við liðinu á miðri síðustu leiktíð og gerði það að Danmerkur- og bikarmeisturum. Miklu hefur verið til tjaldað hjá KIF en nú þarf að draga saman seglin.

„Þetta spinnast út frá fjárhagsstöðu félagsins. Það þarf að skera niður og þetta byrjar allt á því. Menn þurfa að skera niður í leikmannahópnum fyrir næstu leiktíð og vanda til verka. Því verður leikmannahópurinn ekki með sömu breidd. Einnig þarf að skera niður í þjálfaramálum félagsins,“ segir Aron.

Eins og kom fram í máli Arons hér aðeins fyrr í dag er hann ekki í viðræðum um áframhaldandi samning sem landsliðsþjálfari Íslands. Hann hefur rætt við sitt gamla félag Hauka sem verða þjálfaralausir í lok tímabilsins.

Aron mun ekki þjálfa Hauka eða annað íslenskt lið samhliða því að vera landsliðsþjálfari. En kannski kemur til greina að hann fari í sitt gamla fulla starf hjá HSÍ. Það hefur þó ekki verið rætt eins og fyrr segir.

„Manni er annt um íslenskan handbolta en staðan á mér gagnvart HSÍ og A-liðinu þarf að koma í ljós. Það er samt ljós að maður bíður ekki fram í miðjan júní með að ákveðja sig,“ segir Aron.

„Þegar ég fór út var fræðslustjórastarfið lagt niður og botninn datt aðeins úr uppbyggingunni sem var farið af stað. Eftirfylgnin minnkaði þannig það er ýmislegt sem þarf að rífa upp og efla svo framgangur íslensks handbolta verði sem mestur.“

„Ég setti upp afreksstefnu fyrir yngri landsliðin sem náðist ekki að klára,“ segir Aron Kristjánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×