Fótbolti

Aron: Skref í rétta átt fyrir mig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron fagnar sigurmarki sínu gegn Ajax sem er í miklu uppáhaldi hjá honum.
Aron fagnar sigurmarki sínu gegn Ajax sem er í miklu uppáhaldi hjá honum. vísir/getty
Eins og frá var greint á Vísi fyrr í dag er Aron Jóhannsson á leið til Werder Bremen en AZ Alkmaar hefur samþykkt fimm milljóna evra tilboð þýska liðsins í framherjann.

AZ hefur staðfest félagaskiptin en Aron var í viðtali á heimasíðu félagsins í dag þar sem hann ræðir um þetta næsta skref á ferlinum.

„Það er gott að taka næsta skref á ferlinum og þýska deildin er ein sú besta í heiminum,“ sagði Aron sem lék tvö og hálft tímabil með AZ.

„Að sama skapi eru þetta blendnar tilfinningar. Það er erfitt að yfirgefa AZ og vini mína hér. En það eru spennandi tímar framundan og ég get ekki beðið eftir því að byrja með nýja liðinu.“

Sjá einnig: Fjölnir hagnast vel á félagaskiptum Arons

Aron segir að það hafi ekki verið neitt sérstaklega erfið ákvörðun að fara til Bremen sem endaði í 10. sæti þýsku deildarinnar á síðasta tímabili.

„Þegar þeir komu inn í myndina var þetta frekar auðveld ákvörðun því ég vil að sjálfsögðu spila fyrir sterkara lið í sterkari deild. Þetta er skref í rétta átt fyrir mig,“ sagði Aron sem er ánægður með tímann hjá AZ.

„Ég hef lært mikið og þetta hefur verið mjög ánægjulegur tími. Við unnum bikarkeppnina nokkrum mánuðum eftir að ég kom hingað, náðum góðum árangri í Evrópudeildinni og svo enduðum við í 3. sæti hollensku deildarinnar í fyrra. Ég mun sakna félagsins.“

Aron segir að sigurmarkið sem hann skoraði gegn Ajax á Amsterdam Arena 5. febrúar síðastliðinn standi upp úr á ferli hans hjá AZ.

„Það er uppáhalds augnablikið á ferli mínum hér og það er líklega einnig í uppáhaldi hjá stuðningsmönnunum. Markið tryggði okkur sigur á Ajax á útivelli í fyrsta sinn í yfir 30 ár,“ sagði Aron en viðtalið í heild sinni má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×