Fótbolti

Aron: Okkur hefur dreymt um þetta síðan við vorum ungir drengir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Einar Gunnarsson ætlar sér í 16 liða úrslitin.
Aron Einar Gunnarsson ætlar sér í 16 liða úrslitin. vísir/vilhelm
Strákarnir okkar mæta Austurríki í síðasta leik liðanna í F-riðli EM 2016 í fótbolta á Stade de France í Saint-Denis í dag. Ljóst er eftir úrslit gærkvöldsins að jafntefli kemur íslenska liðinu í 16 liða úrslitin.

Leikurinn er sannarlega sá stærsti í sögu karlalandsliðsins en þeir hafa nú allir verið frekar stórir undanfarin misseri eins og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson benti á á blaðamannafundi íslenska liðsins í gær.

„Ég man ekki lengur eftir því hvenær ég var ekki að spila stærsta leik ferilsins. Þetta er búið að vera þannig í svolítið langan tíma. Ég efast ekki um að vi göngum stoltir frá velli sama hvernig fer,“ sagði Aron Einar.

Strákana okkar dreymir - eins og alla aðra á mótinu - að komast upp úr riðlinum og taka þátt í útsláttarkeppninni. Það yrði mikið afrek fyrir Ísland á sínu fyrsta stórmóti.

„Þetta er búið að vera frábær reynsla. Við finnum fyrir áhuganum sem er á liðinu og okkur finnst við eiga hann skilið. Okkur hefur alla dreymt um þetta síðan við vorum ungir drengir og nú viljum við halda áfram og ná lengra. Við viljum vera hér í nokkrar vikur í viðbót,“ sagði Aron Einar Gunnarsson.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Austurríska landsliðið: Skrekkur á stóra sviðinu

Austurríkismenn voru með eitt besta liðið í undankeppni EM 2016 en þeir eru bara með eitt stig og enn án sigurs á EM í Frakklandi eftir tvo leiki. Sigur á Íslandi kemur þeim áfram en öll önnur úrslit þýða að liðið er úr leik.

Enginn tilbúinn að kveðja EM í dag

Íslenska landsliðið mætir Austurríki á Stade de France í lokaleik liðsins í París í dag. Nái strákarnir okkar ekki góðum úrslitum kveðja þeir Frakkland og það sem meira er, þetta yrði síðasti leikur Lars Lagerbäck.

EM dagbók: Sjáumst á fimmtudag!

Starfsfólkið á hóteli okkar fjölmiðlamanna í Annecy er yndislegt. Þetta er fremur lítið hótel sem er þekktara fyrir veitingastaðinn sinn en sjálfa hótelstarfsemina. Stjarna matseðilsins er lasanja "hennar mömmu“ eins og rétturinn er auglýstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×