Innlent

Arnþrúður segir ásakanir Evrópunefndar setja sig í lífshættu

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri.
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri. Mynd/Útvarp Saga
„Þarna eru rangar sakir bornar á Útvarp Sögu. Það er verið að saka okkur um hatursorðræðu gegn múslimum. Bara það eitt og sér setur okkur í alvarlega lífshættu. Ég lít svo á,“ segir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, um skýrslu ECRI, nefndar Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi, sem Fréttablaðið greindi frá í gær.

Í skýrslunni segir meðal annars að ECRI sé kunnugt um Útvarp Sögu sem „dreifi hatursorðræðu“ sem beint sé að innflytjendum, múslimum og hinsegin fólki.

„Þessi skýrsla er óundirrituð. Það er eins og það sé enginn ábyrgðarmaður fyrir þeim fullyrðingum sem þarna koma fram,“ segir Arnþrúður. Þá segir hún ásakanir ECRI alvarlegar og gagnrýnir að útvarpsstöðin hafi ekki fengið möguleika á að svara þeim.

„Þetta finnst mér koma úr hörðustu átt, frá nefnd sem vinnur undir merkjum mannréttinda og byrjar á því að brjóta á mannréttindum þeirra sem fjallað er um,“ segir Arnþrúður enn fremur.

Þá segir hún sláandi að nefnd á vegum Evrópuráðsins „sé á fleygiferð að skipta sér af innanríkismálum á Íslandi, reyna að hafa áhrif á hegningarlög landsins og stjórnsýslu“. Arnþrúður segir að á sama tíma og Íslendingar haldi að þeir séu að kjósa alþingismenn sem ráði allri löggjöf á landinu komi nefnd frá Evrópuráðinu aftan að þeim með óundirritað plagg sem í hennar huga sé eins og hver annar ruslpóstur.

„Þeir komu hingað einhvern tímann í fyrra og ég sé ekki betur en að þeir hafi leitað uppi nafnleysingja sem hafi viljað koma skoðunum sínum á framfæri með þessum hætti,“ segir hún enn fremur og bætir því við að skýrslan sé vel til þess fallin að stórskaða fólk í víðu samhengi. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Nefnd Evrópuráðsins segir boðskap Útvarps Sögu og Omega hatur

Nefnd gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi segir efni Omega og Útvarps Sögu hatursorðræðu. Ummæli Íslendinga á netinu, þingmanns Sjálfstæðisflokks og borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina eru gagnrýnd í nýrri skýrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×