Handbolti

Arnór Þór markahæstur í mikilvægum sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Arnór skorar mikið þessa dagana
Arnór skorar mikið þessa dagana
Arnór Þór Gunnarsson var markahæsti leikmaður Bergischer sem lagði Lemgo 31-30 á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Leikurinn var gríðarlega spennandi og jafnaði Lemgo metin þegar innan við hálf mínúta var eftir af leiknum en Viktor Szilagyi tryggði Bergischer sigurinn fimm sekúndum fyrir leikslok.

Arnór skoraði 7 mörk fyrir Bergischer og Björgvin Páll Gústavsson stóð í marki liðsins og varði meðal annars nokkur skot undir lok leiksins áður en Lemgo náði að jafna metin í 30-30.

Bergischer er í efri hluta deildarinnar með 11 stig en Lemgo er meðal neðstu liða með 4 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×