Handbolti

Arnór skoraði tvö mörk í tapi gegn toppliðinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arnór Atlason í leik með Saint-Raphaël.
Arnór Atlason í leik með Saint-Raphaël. mynd/srvhb.com
Arnór Atlason og félagar hans í Saint-Raphaël töpuðu fyrir toppliði Montpellier, 34-27, í lokaleik sjöttu umferðar í frönsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Heimamenn í Saint-Raphaël voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 17-15, en gestirnir tóku fljótt forystuna, 19-20, og bættu bara í þar til yfir lauk.

Arnór Atlason skoraði tvö mörk úr fimm skotum fyrir sína menn í kvöld og gaf þrjár stoðsendingar, en Saint-Raphaël er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig eftir sex umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×