Fótbolti

Arnór Ingvi fer vel af stað

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Ingvi þreytir frumraun sína í Evrópu.
Arnór Ingvi þreytir frumraun sína í Evrópu. vísir/afp
Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliði Rapíd Vín sem vann 3-2 sigur á belgíska liðinu Genk í Evrópudeild UEFA í kvöld.

Arnór Ingvi spilaði fyrstu 79 mínúturnar í leiknum en þegar hann fór af velli var staðan 3-1 fyrir austurríska liðið.

Stefan Schwab og Joelinton skoruðu fyrir Rapíd en þriðja markið var sjálfsmark sem kom á 60. mínútu.

Leon Bailey skoraði bæði mörk Genk, það síðara úr vítaspyrnu í uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×