Bíó og sjónvarp

Arnold verður Conan á ný

Baldvin Þormóðsson skrifar
Vísir/Getty
Vefsíðan TheArnoldFans, aðdáendasíða leikarans Arnolds Schwarzenegger, náði tali af Fredrik Malmberg, framleiðanda myndarinnar Conan the Barbarian, en þar ýjar hann að því að það sé í pípunum að taka myndina upp aftur árið 2015.

Farið yrði þá yfir handritið og ýmsum smáatriðum breytt, til dæmis aldri konungsins Conans þar sem Schwarzenegger er orðinn töluvert eldri en hann var í fyrstu myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×