Árni spyr hvort Árni ætli í stríð Boði Logason skrifar 8. júní 2010 16:23
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, spyr hvort að Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra ætli í stríð við opinbera starfsmenn í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum nú síðdegis. Árni Páll sagði í viðtali við Fréttablaðið í morgun að ein aðferðin til sparnaðar fyrir ríkið sé að frysta laun opinberra starfsmanna í þrjú ár. Árni Stefán segir að frysting launa opinberra starfsmanna gangi einfaldlega ekki upp sem sparnaðarleið. Nú þurfi að efla efnahagskerfið en hugmyndir félagsmálaráðherra gangi þvert á það. Frysting launa myndi kalla á samdrátt í hagkerfinu og það sé algjörlega út í hött að ræða launamál á þessum nótum, án allrar tengingar við aðra þróun í samfélaginu. Hann segir það reyndar vekja furðu að þessi orð séu látin falla núna mitt í umræðum milli aðila um fjárlög næsta árs. Stéttarfélög opinberra starfsmanna og ríki séu nú að undirbúa umræðu um fjárlagagerð og svona hótanir séu alveg úr takti við yfirlýsta stefnu ríkisstjórnarinnar. „Það er á mörkunum að það sé hægt að taka mark á svona gaspri," segir Árni Stefán og bætir við að það sé með öllu forkastanlegt að nota orð eins og þjóðarsátt um frystingu launa opinberra starfsmanna. Í tilkynningunni kemur einnig fram að rétt sé að benda á að samkvæmt nýlegri frétt frá Hagstofu Íslands hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,3% að meðaltali á fyrsta ársfjórðungi 2010 en laun opinberra starfsmanna hækkuðu einungis um 0,3% á sama tíma. Ef teknar eru tölur frá fyrra ári má sjá að laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 4,4% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 1,4% á sama tíma
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira