Innlent

Árni Páll eltist við innanríkisráðherra á Facebook

Heimir Már Pétursson skrifar

Formaður Samfylkingarinnar segist hafa elst við innanríkisráðherra á Facebook í gær til að fá svör við ákvörðun um að vopn verði í lögreglubifreiðum. Þessi ákvörðun sé stórpólitískt mál sem eigi heima á Alþingi Íslendinga.

Ólöf Nordal innanríkisráðherra svaraði fyrirspurnum Árna Páls Árnasonar formanns Samfylkingarinnar og Helga Hrafns Gunnarssonar þingmanns Pírata um vopnaburð lögreglunnar á Alþingi í gær. En áþingfundi nú fyrir hádegi lýsti Árni Páll yfir óánægju með svör ráðherrans. Hún hafi sagt að ekki væri verið að breyta neinum reglum en hefði ekki svaraðþeirri spurningu með hvaða hætti væri verið að breyta reglum um vopn í lögreglubílum.

„Ég endaði íþeirri undarlegu aðstöðu í gærkvöldi virðulegur forseti í gærkvöldi að eltast við innanríkisráðherra á Facebook til að spyrja um þessi mál. Þetta er fullkomlega óboðleg aðstaða. Vopnabúnaður lögreglu og aðgangur almennrar lögreglu að vopnum er grundvallar þáttur íþví með hvaða hætti við tryggjum öryggi borgaranna,“ sagði Árni Páll.

Það væri engin fylgni á milli vopnaburðar lögreglu og færri glæpa, heldur oft á tíðum þvert á móti.

„Og sú ákvörðun að gera vopn aðgengilegri fyrir almenna lögreglu menn er stórpólitískt mál og á heima á Alþingi Íslendinga og það er ófært að um það sé ekki umræða hér á Alþingi. Ég vil þess vegna óska eftir sérstakri umræðu við hæstvirtan innanríkisráðherra strax í næstu vikuog mér finnst eðlilegt að hér komi allar skýringar upp á borðið. Það er ekki eðlilegt að það sé Fréttablaðið sem er að upplýsa okkur um vopnaburð lögreglunnar með brotakenndum hætti og yfirlögregluþjónn tjái sig við Fréttablaðið með ríkari hætti en ráðherra málaflokksins tjáir sig við Alþingi Íslendinga,“ sagði Árni Páll.

Það væri ekkert gefið um að öryggi almennings verði bætt með auknum aðgangi lögreglu að vopnum.

„Og það er mikilvægt að hafa í huga að vopn í höndum löggæslu sem ekki er tryggilega umbúið, skýrar reglur gilda um og almenn vitneskja er um með hvaða hætti er beitt, geta orðið til að draga úr öryggi borgaranna en ekki til að auka það,“ sagði Árni Páll Árnason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×