Sport

Arnhildur fékk brons á EM

Arnhildur ánægð á verðlaunapallinum.
Arnhildur ánægð á verðlaunapallinum. mynd/aðsend
Arnhildur Anna Árnadóttir gerði sér lítið fyrir og vann til bronsverðlauna í hnébeygju á EM unglinga í kraftlyftingum í St. Pétursborg í gær.

Hún lyfti 190 kg í -72 kg flokki. Það dugði henni í bronsið sem hún var eðlilega mjög ánægð með. Ásamt Arnhildi keppti í dag Camilla Thomsen sem jafnaði íslandsmet sitt í unglingaflokki með því að lyfta 155 kg í réttstöðu.

Í dag keppir Einar Örn Guðnason og á morgun er komið að Júlían J.K. Jóhannssyni og verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×