Íslenski boltinn

Arnar um vítaklúður Glenn: Þetta er lengra framhjá en það virðist vera

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jonathan Glenn, framherji Breiðabliks, fór illa að ráði sínu í uppbótartíma í leik Blika og Leiknis á Kópavogsvellinum í gær.

Staðan var markalaus þegar Glenn krækti í vítaspyrnu í uppbótartíma. Hann fór sjálfur á punktinn en spyrna hans var slök og hitti ekki markið.

Breiðablik varð því af tveimur mikilvægum stigum í toppbaráttunni en liðið er nú sex stigum á eftir toppliði FH þegar fjórum umferðum er ólokið í Pepsi-deildinni.

„Í fyrsta lagi voru þetta hádramatískar lokamínútur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson í Pepsi-mörkunum í gær.

„Fyrst þegar ég sá þetta fannst mér þetta vera pjúra víti. En því oftar sem maður horfir á þetta sýnist mér þeir bara vera barátta inni í teignum.

„Þarna finnst mér Glenn einfaldlega toga í Halldór Kristinn (Halldórsson, miðvörð Leiknis) og fiska þetta víti mjög vel. Dómarinn (Þorvaldur Árnason) er reyndar vel staðsettur og allt það.“

Arnar ræddi því næst um spyrnuna sjálfa en hann var er sjálfur ein allra besta vítaskytta í sögu efstu deildar.

„Hann er búinn að klúðra einu víti í sumar með ÍBV á móti Víkingum og þetta er bara léleg spyrna. Hann opnar líkamann alltof mikið og þetta er lengra framhjá en það lítur út fyrir að vera í sjónvarpinu,“ sagði Arnar.

Hjörvar Hafliðason, sem var gestur Harðar Magnússonar í Pepsi-mörkunum í gær ásamt Arnari, sagðist ekki hafa haft trú á því að Glenn myndi skora úr spyrnunni.

„Um leið og ég heyrði að hann væri á leið á punktinn hafði ég ekki trú á þessu. Mér finnst hann einhvern veginn ekki vera góður spyrnumaður,“ sagði Hjörvar sem kom með áhugaverða tillögu að vítaskyttu í þessari stöðu.

„Þarna hefði Arnar Grétarsson (þjálfari Breiðabliks) getað átt sitt „Van Gaal-móment“. Ég hefði sett Olgeir Sigurgeirsson inn á. Hann er rosaleg vítaskytta og er ábyggilega með besta „record“ í sögu Breiðabliks yfir menn sem hafa tekið fleiri en fimm víti.

„Hann er ískaldur á punktinum,“ sagði Hjörvar en Olgeir skoraði t.a.m. úr fimm vítaspyrnum með Breiðabliki í 1. deildinni sumarið 2005.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×