Fótbolti

Arnar Þór hafði betur gegn Ólafi Inga

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Arnar Þór á góðri stund sem leikmaður Cercle
Arnar Þór á góðri stund sem leikmaður Cercle vísir/aðsend
Cercle Brugge vann fyrsta leik sinn undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar þegar liðið lagði Zulte-Waregem 2-1 í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Ólafur Ingi Skúlason lék fyrstu 84 mínúturnar fyrir Zulte-Waregem en liðið er á botni deildarinnar með sex stig í ellefu leikjum.

Cercle hefur leikið leik meira og er nú með sex stigum meira í 13. sæti deildarinnar en Cercle hafði tapað fjórum leikjum í röð fyrir leik kvöldsins.

Staðan í hálfleik var 1-1 en Zulter-Waregem komst yfir snemma leiks. Sigurmarkið í leiknum var skorað tólf mínútum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×