Handbolti

Arnar Pétursson: Ekki boðlegar aðstæður

Tryggvi Páll Tryggvason í Víkinni skrifar
Arnar Pétursson messar yfir sínum mönnum í kvöld.
Arnar Pétursson messar yfir sínum mönnum í kvöld. vísir/pjetur
Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, var vægast sagt ósáttur við aðstæður í Víkinni í kvöld þar sem meistaraefnin frá Eyjum unnu sigur á nýliðum Víkings, 26-22, í áttundu umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Stephen Nielsen, markvörður ÍBV, og stórskyttan Andri Heimir Friðriksson meiddust báðir og lét Arnar dómara og ritara leiksins heyra það þegar leikmenn sínir meiddust enda sagðist hann hafa verið búinn að kvarta yfir gólfinu.

Hann segir að leikmenn sínir hafi verið orðnir smeykir við að gera ákveðna hluti vegna meiðslahættu.

„Aðstæðurnar voru bara ekki boðlegar. Við gerðum athugasemdið við gólfið fyrir leik. Það var bara ekki nógu gott, sérstaklega ekki í einum teignum og við missum svo Stephen út eftir tvær mínútur.“

„Í fyrri hálfleik voru strákar hjá mér sem voru smeykir, þorðu ekki í ákveðna hluti sem mér finnst eðllegt þegar þeir eru búnir að horfa upp á þrjá leikmenn meiðast.“

Arnar segir að þetta hafi haft áhrif á sjálfan sig og leik sinna manna en hann er þó ánægður með að hafa landað tveimur stigum.

„Þetta var tæpt og við vorum farnir að einbeita okkur að einhverju öðru á tímabili í leiknum. Við komum þó sterkir inn og náum að klára þetta. Við vorum smeykir við Víkingana, þeir töpuðu illa í síðasta leik og við vissum að þeir myndu selja sig dýrt.“

Framundan eru tveir Evrópuleikir en óvíst er með þáttöku Stephen og Andra Heimis í þeim leik, Stephen meiddist á hnéi en Andri Heimir á ökkla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×