Fótbolti

Arnar Már: Geðveikt að fá að spila á San Siro

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Arnar Már Björgvinsson með boltann í fyrri leiknum gegn Inter.
Arnar Már Björgvinsson með boltann í fyrri leiknum gegn Inter. vísir/Andri Marinó
Stjarnan mætir Inter öðru sinni í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á hinum magnaða 80.000 sæta San Siro-velli í Mílanó í kvöld. Einvígið er í raun búið eftir 3-0 sigur Inter í Laugardalnum í síðustu viku og Garðbæingar eru meðvitaðir um það.

„Við ætlum bara að njóta þess að spila þarna. Uppleggið er að koma þeim á óvart og reyna að skora til að búa til leik úr þessu. Það væri algjör draumur að skora fyrsta markið,“ segir Arnar Már Björgvinsson, kantmaður Stjörnunnar, við Fréttablaðið.

Hann var í rútu á leið á San Siro á síðustu æfingu fyrir leik þegar Fréttablaðið tók hann tali í gær. Spennan leyndi sér ekki.

„Inter var alltaf mitt fyrsta lið þegar ég var að alast upp þannig að ég hef lengi horft hýru auga til San Siro. Það er bara geðveikt að vera að fara að spila þarna og ég get ekki beðið eftir því að komast út á grasið núna.“

Þrátt fyrir að vera margfalt stærra, ríkara og frægara lið sá Inter þó ekki almennilega um gesti sína hvað varðar æfingaaðstöðu.

„Þeir redduðu okkur einhverjum velli sem var alveg hlægilega lélegur. Við enduðum á að æfa á einhverju gervigrasi við enda vallarins. Ég veit ekki hvað þetta átti að vera. Við redduðum þeim Hlíðarenda þannig að Inter æfði á betri velli á Íslandi en við í Mílanó,“ segir Arnar Már Björgvinsson.

Leikur Inter og Stjörnunnar verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 18.45.


Tengdar fréttir

Góð stemming fyrir leik Stjörnunnar og Inter | Myndir

Þrátt fyrir 0-3 tap gegn Inter í gær var frábær stemming hjá stuðningsmönnum Stjörnunnar á Ölver fyrir leik, í skrúðgöngunni á leikinn og á leiknum sjálfum. Vísir hefur tekið saman skemmtilega myndsyrpu frá kvöldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×